Kaupskilmálar
Með því að leggja inn pöntun hjá Cosmetics samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála.
Seljandi er Cosmetics ehf.
Gilsbúð 3, 210 Garðabæ
5689918
Pöntun
Pöntun er bindandi þegar kaupandi hefur staðfest pöntun. Cosmetics áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Þegar töluvpóstur með staðfestingu um að pöntun sé tilbúin er móttekinn, má nálgast pöntunina á opnunartíma verslunar.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.
Cosmetics ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Cosmetics til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Sendingarmöguleikar eru mismunandi eftir vörumerkjum, sjá sendingarmöguleika í greiðsluferli.
Opnunartímar
Sjá opnunartíma verslunar.
Hægt er að nálgast tilbúna pöntun þegar staðfesting um að pöntun sé tilbúin hefur borist kaupanda í tölvupósti.
Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Dropp og Landpósti OG GREITT ER SAMKVÆMT VERÐSKRÁ COSMETICS - LAGA ORÐALAG
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi eða kvittun sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.
Vöruskil fara fram í verslun okkar í Gilsbúð 3 á opnunartímum. Einnig er hægt að senda vöruna tilbaka, kaupandi ber ábyrgð og kostnað af því. Endursendingar berist á póstfangið Gilsbúð 3, 210 Garðabær.Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður varan endurgreidd eftir að hún hefur verið móttekin. Endurgreiðsla fer fram á sama hátt og viðskiptavinur greiddi fyrir hana. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Ósóttar pantanir
Eftir 30 daga er ekki hægt að tryggja að vara skv. pöntun sé til á lager og gæti því verið einhver bið eftir vöru.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Komi til vandamála varðandi viðskiptin sem ekki er unnt að leysa milli aðila má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd vöru og þjónustukaupa til húsa að Borgartúni 21, 105 Reykjavík. Ef allt þrýtur má leita til dómstóla í íslenskri lögsögu og lögsagnarumdæmi seljanda.